Topp tónlist
Topp tónlist
00:00 - 07:00

Núna

Harry Styles

As It Was

Næst

Chase & JóiPé

Ég Vil Það

Hlusta í beinni

Ný íslensk tónlist

Ef þú hefur áhuga á að koma tónlist þinni á framfæri við okkur eru í boði nokkrir valmöguleikar. Þú getur sent okkur lag eða lög sem viðhengi í tölvupósti, fm957@fm957.is , vísað á varða vefslóð eða á skráningarsíðunni sem vísað er á hér að neðan. Nauðsynlegt er að láta fylgja með allar nauðsynlegar upplýsingar; nafn flytjanda, nafn lags, nafn á plötu sem lagið er tekið af (þegar það á við), nafn höfundar, útgefanda (þegar það á við) og símanúmer eða netfang.

Gott er að hugsað sé um að hljóðskráin sem send er sé eins og um smáskífu sé að ræða. Þannig að fram komi nafn flytjanda og lagaheiti og jafnvel ISRC í endann. Þá óskum við eftir að hljóðskrárnar séu í sem mestum gæðum. helst í wav formi.

Öll tónlist sem berst er meðhöndluð af vandlega skipuðu tónlistarráði sem kappkostar að meta tónlistina af fagmennsku, virðingu og opnum huga. Athugið við áskiljum okkur fullan rétt til að meta hvort tónlistin falli að dagskrárstefnu stöðvarinnar og verði tekin til spilunar.

Í reitnum "Netfang sendanda" er nauðsynlegt að hafa með netfang svo hægt sé að svara innsendingum ef við þurfum frekari upplýsingar.